Um okkur

Gamlar símaskrár

Velkomin á Gamlar símaskrár. Þessi síða er hugvit og í eigu Eysteins Guðna Guðnasonar. Þetta verkefni byrjaði í Kolaportinu fyrir mörgum árum síðan þegar ég keypti símaskrá frá 1959. Seinna sá ég að Bókasafn Vestmannaeyja átti mikið safn af símaskrám og þegar ég hafði samband við þau þá voru þau einmitt að hugsa um að losa sig við þær.

Frá upphafi var hugmyndin að skanna símaskrárnar og hafa þær aðgengilegar almenningi. Einskonar blanda af timarit.is og ja.is. Fyrir þá sem hafa áhuga þá notaði ég Fujitsu fi-6130 skanna. En til þess að geta notað hann þurfti ég að skera kjölinn af öllum símaskránum. Það skemmtilega við það er að núna getið þið eignast þær blaðsíður sem notaðar voru við gerð þessarar síðu.

Símaskrárnar geyma ekki aðeins upplýsingar um gömul símanúmer. Þær eru líka heimild um hvenær fyrirtæki voru starfandi, hvernig bæir stækkuðu og gluggi inn í fortíðina.

Ljósmynd á forsíðu: Javier Rodríguez.